Benchmark fær rekstrarleyfi í Höfnum

200
Deila:

Matvælastofnun hefur veitt Benchmark Genetics Iceland hf. rekstrarleyfi til fiskeldis að Kirkjuvogi í Höfnum, Reykjanesbæ í samræmi við lög um fiskeldi. Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 24. febrúar 2021 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 24. mars 2021.

Benchmark Genetics Iceland hf. (áður Stofnfiskur hf.) sótti um breytingu á rekstrarleyfi fyrir 90 tonna hámarkslífmassa í seiðaeldi á laxi og hrognkelsum að Kirkjuvogi í Höfnum, Reykjanesbæ. Fyrirtækið var áður með rekstrarleyfi til seiðaeldis á laxi (150 tonn),  bleikju (5 tonn), þorski (4,9 tonn) og hrognkelsi (40 tonn) að Kirkjuvogi. Umsókn um nýtt rekstrarleyfi var móttekin 11. júní 2020. Úttekt starfsstöðvar hefur farið fram og staðfestir Matvælastofnun gildistöku rekstrarleyfis Benchmark Genetics Iceland hf. FE-1175 að Kirkjuvogi í Höfnum, Reykjanesbæ, en starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Framkvæmd fyrirtækisins er ekki matsskyld skv. ákvörðun Skipulagsstofnunar í samræmi við lög um mat á umhverfisáhrifum.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður.

 

Deila: