Bera saman afla með og án eftirlitsmanns

80
Deila:

Fiskistofa birtir upplýsingar um aflasamsetningu á hinum ýmsu tegundum veiða eftir því hvort eftirlitsmenn stofnunarinnar voru með í för eða ekki. Að þessu sinni birtast hér upplýsingar um aflasamsetningu dragnótar- og botnvörpuskipa á tímabilinu september til og með desember 2019.

Ástæður breytilegrar aflasamsetningar geta verið margvíslegar. Aðstæður í hafinu geta verið ólíkar hverju sinni og ætlun útgerðar og skipstjórnarmanna getur verið mismunandi frá einni veiðiferð til annarrar.

Það er m.a. hlutverk Fiskistofu að hafa eftirlit með að ekki komi til brottkasts. Til þess að rækja það hlutverk sem best beitir Fiskistofa margvíslegum aðferðum og má í því sambandi nefna samvinnu við útgerðir og skipstjórnarmenn, áhættugreiningu við eftirlit og aðgengi allra að upplýsingum um veiðar og afla. Þannig telur Fiskistofa að hún ræki hlutverk sitt að gæta hagsmuna þjóðarinnar við ábyrga nýtingu auðlinda hafs og vatna.

Fiskistofa birtir hér niðurstöður um magn og fjölda fisktegunda í veiðiferðum dragnótar- og botnvörpuskipa haustið 2019. Í þeim gögnum sem hér eru tekin saman og birt er borin saman aflasamsetningin á sama skipi í fimm veiðiferðum í röð og þær veiðiferðir auðkenndar þegar veiðieftirlitsmenn Fiskistofu voru um borð. Birtar eru upplýsingar um landaðan afla í tveimur veiðiferðum sama skips á undan og á eftir ferðinni með eftirlitsmanninum eftir því sem við veður komið.

Upplýsingar um aflasamsetningu dragnótarskipa september til desember 2019

Upplýsingar um aflasamsetningu botnvörpuskipa september til desember 2019

 

Myndirnar hér að neðan sýna sem dæmi aflasamsetningu í fimm ferðum dragnótarskipsins Regins annars vegar, og botnvörpuskipsins Sirrýjar  hins vegar.

 

 

Deila: