Björgunarkafarar útskrifaðir

101
Deila:

Tólf starfsmenn Landhelgisgæslunnar, Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og Ríkislögreglustjóra voru í gær útskrifaðir sem björgunarkafarar við hátíðlega athöfn í Skógarhlíð. 
Kafararnir hafa að undanförnu sótt átta vikna námskeið undir leiðsögn fjögurra leiðbeinenda. 
Með því að standa sameiginlega að námskeiði sem þessu fá kafarar þessar ólíku stofnana sömu þjálfun sem skilar sér í samræmdu verklagi þegar mikið liggur við.

Deila: