Bláskel í ostasoði

202
Deila:

Það er fleira að finna í Ríkinu en áfenga drykki. Þar er að finna ýmsar uppskriftir eins og þessa sem við bjóðum nú lesendum okkar uppá. Bláskelin er mikið ljúfmeti og í hávegum höfð víða um heim. Hún er til dæmis vinsæll réttur í Belgíu. Skelina má tína í fjörum landsins á fjöru, en hún er einnig ræktuð hérlendis, meðal annars í Stykkishólmi. Uppskriftin miðast við fjóra.

 Innihald: 

1,5 kg fersk bláskel  

1 búnt vorlaukur 

150 g smjör 

1 bolli hvítvín 

500 ml ostasoð 

1,5 kg kartöflur  

 Ostasoð 

1 stk. laukur  

2 stk. hvítlauksgeiri 

100 g parmesan, rifinn  

200 ml vatn  

200 ml rjómi  

100 ml hvítvín  

 Ostasoð, aðferð: 

Laukur og hvítlaukur sneiddir og svitaðir í potti þar til glærir og fínir, hvítvíninu er þá bætt út í og soðið í stutta stund.  Því næst er rjóma og vatni bætt út í og blandan látin sjóða í nokkrar mínútur. Að lokum er parmesan ostinum bætt út í, öllu blandað saman með töfrasprota eða písk og soðið loks sigtað. 

 Kartöflur: 

Skerið kartöflur í hæfilega bita og veltið upp úr olíu, gott er að krydda þær með ferskum hvítlauk, fersku garðablóðbergi (timian), salti og pipar. Ofnbakið í um 20-30 mínútur á 180°C.  

 Bláskel: 

Best er að nota stóran pott miðað við magn sem á að elda og hafa allt hráefni tilbúið við höndina, þar sem eldunin tekur mjög stuttan tíma. Vorlaukurinn er skorinn fínt meðan potturinn hitnar.  Bláskel, smjör og vorlaukur sett í vel heitan pottinn, víninu bætt út í og pottinum lokað strax (mikilvægt að nota lok og hafa hraðar hendur) og soðið í 1 mínútu. Að lokum er ostasoðinu bætt við og allt soðið þar til allar skeljar hafa opnast, mikilvægt er að gæta þess að sjóða ekki of lengi. Best er að bera skelina fram í pottinum sem hún er elduð í og kartöflur í skál til hliðar.  

 Þessi uppskrift er frá VON mathúsi

Vínin með

Með þessum rétti hentar ferskur Sauvignon Blanc vel. Nýsjálenskur Sauvignon Blanc er að öllu jöfnu ávaxtaríkari en franskur Sancerre, sem yfirleitt gefur af sér grösugri bragðeinkenni. Einnig getur spænskur Albariño hentað vel.

Deila: