Botnfiskvinnslu Brims umbylt

241
Deila:

Síðasti vinnsludagur í Norðurgarði var 22. apríl. Gert er ráð fyrir að vinnsla hefjist að nýju þann 24. júní. Þessir tveir mánuðir verða nýttir til að endurnýja botnfiskvinnsluna. Nánast öllum búnaði, allt frá móttöku aflans til pökkunar, verður skipt út.

Meðal annars kemur nýtt karakerfi fyrir innmötun í hráefniskæli og karaþvottavél auk þess sem settur verður upp þjarkur (robot) sem losar fisk úr körum inn á hráefnisflokkara. Þetta er í fyrsta skipti sem þjarkur er nýttur á þennan hátt. Settar verða upp nýjar snyrtilínur, vatnsskurðarvélar og þjarkar sem pakka ferskum flökum og flakabitum í kassa. Allar afurðir fara í gegnum beinaleitarvél. Auk þess verður lausfrystum skipt út og frystikerfið stækkað. Einnig verða þjarkar notaðir til að raða kössum á bretti með ferskum flökum og flakabitum. Þá verður vinnsluhúsnæði og starfsmannaaðstaða lagfærð. Með þessari framkvæmd aukast afköst, nýting verður betri sem og gæði afurða.

„Orlofstaka starfsmanna hefur verið samræmd og fræðsludagskrá skipulögð til að kenna starfmönnum á nýjan búnað og bætt vinnuumhverfi.

Vegna covid-19 faraldursins hafa síðustu vikur verið mjög krefjandi á þessum stóra og flókna vinnustað. En hjá vinnslu Brims í Norðurgarði starfa um 150 manns frá fleiri en 20 löndum.

Engin smit hafa komið upp hjá starfsmönnum Norðurgarðs. Stjórnendur vinnslunnar eiga mikinn heiður skilinn fyrir að leysa þetta flókna verkefni og halda uppi fullri vinnslu þar sem fyrirmælum sóttvarnarlæknis var fylgt út í ystu æsar. Slíkt kallar á þaulhugsað og nákvæmt skipulag.

Starfmenn eiga ekki síður þakkir skildar. Þeir eru mjög meðvitaðir um sóttvarnir og hafa lagt sig fram um að fylgja fyrirmælum og breyta verklagi til að forðast smit.

Allir hafa lagst á eitt og eiga mikið hrós skilið,“ segir í frétt frá Brimi.

 

 

Deila: