Bræðslurnar neyðast til að brenna olíu

Deila:

„Enn einu sinni hefur það gerst að Landsvirkjun hefur þurft að skerða orku til verksmiðjanna og er það mjög miður. Nú er verksmiðjan á Seyðisfirði að öllu leyti keyrð á olíu og verksmiðjan í Neskaupstað ýmist á olíu eða rafmagni. Þessar skerðingar á raforku eru afskaplega hvimleiðar. Enn og aftur er það að koma í ljós að raforka í landinu er ekki nægileg í öllum tilvikum og ætti það að vera mönnum umhugsunarefni nú á tímum aukinnar umhverfisvitundar,“ segir Hafþór Eiríksson, rekstrarstjóri fiskimjölsverksmiðja Síldarvinnslunnar í frétt frá fyrirtækinu um vinnslu kolmunna sem mikið berst af þessi dægrin. Hann segir mikið að gera í verksmiðjunum tveimur, þ.e. í Neskaupstað og á Seyðisfirði enda séu um 10 þúsund tonn að koma til vinnslu á tveimur sólarirngum. Að auki hafi unnið úr tveimur förum af loðnu.

Ferskleiki kolmunnans skiptir öllu máli
„Kolmunninn sem berst til okkar er mjög gott hráefni. Fiskurinn er í góðu standi á þessum árstíma, til dæmis er fituinnihaldið gott. Fyrir verksmiðjurnar skiptir öllu máli að fá hráefnið ferskt að landi og skipin kæla aflann vel um borð þannig að ferksleikinn er tryggður. Ef aflinn er ekki ferskur gengur vinnslan ekki vel, svo einfalt er það. Annars er kolmunninn magrasta hráefnið sem við fáum til okkar, lýsisframleiðslan er ekki mikil úr honum þó hún sé mest einmitt um þetta leyti árs. Kolmunnamjölið er hins vegar ávallt gæðamjöl,“ segir Hafþór.

Meðfylgjandi er mynd af mjölútskipun í Neskaupstað. Mynd: Ljósm. Ágúst Blöndal/svn.is

Deila: