Brælur hamla loðnuleit

108
Deila:

Heimasíða Síldarvinnslunnar sló í morgun á þráðinn til Þorkels Péturssonar, skipstjóra á Bjarna Ólafssyni AK, og innti hann frétta af loðnuleit. „Það er frekar lítið að frétta. Við vorum í gær austan við Kolbeinseyjarhrygginn og þar urðum við varir við loðnu. Vandinn er hins vegar sá að hún stendur djúpt og er ekki farin að mynda almennilegar torfur. Þessi staða leiðir til þess að hún er ekki veiðanleg í nót en hins vegar væri unnt að ná einhverjum árangri með trolli. Það er aftur á móti ekki heimilt að veiða með trolli fyrir vestan 14.30 gráðuna en við fundum loðnuna þarna á 17.30. Það þyrfti semsagt að stækka trollhólfið í vestur til að veiða loðnuna sem við urðum varir við. Það brældi síðan á okkur og það var ekki annað að gera en að fara í land.

Við komum til Akureyrar klukkan þrjú í nótt og Svanur RE er einnig kominn hingað en hann var í loðnuleit eins og við. Þá er sænska skipið Clipperton einnig komið. Það hefur verið að leita að loðnu í Grænlandssundinu en árangur hefur verið lítill. Hann spáir illa í dag en það á eitthvað að lægja á morgun. Síðan verður aftur einhver bræla á fimmtudag en allt útlit er fyrir gott veður um helgina. Við trúum því að þetta fari allt að koma. Loðnan fer örugglega brátt að þétta sig og verða veiðanleg. Þá væri, held ég, fyllsta ástæða til að færa trolllínuna vestar svo unnt sé að kanna þá loðnu sem við urðum varir við. Það er alltaf spennandi að eiga við loðnuna og hér um borð ríkir bjartsýni,“ segir Þorkell.

Ljósmynd Þorgeir Baldursson

Deila: