Brim gengur til liðs við Bláa herinn

197
Deila:

Brim hf. hefur gerst aðalstyrktaraðili umhverfissamtakanna Bláa hersins sem hafa starfað í 25 ár og leggja áherslu á baráttuna við plastmengun í hafinu með hreinsunarstörfum við strendur landsins og með hvatningu og vitundarvakningu. Brim mun styðja rekstur samtakanna með fjárframlögum og með faglegri aðkomu að kynningu og markaðsstarfi í þeim tilgangi að auka sýnileika umhverfissamtakanna.

Þá mun Brim taka beinan þátt í verkefnum Bláa hersins með eigin hreinsunardegi a.m.k. einu sinni að ári þar sem fjörur verða gengnar og hreinsaðar.
Brim hf. á sér langa sögu og býr að mikilli reynslu og þekkingu á nýtingu auðlinda og framleiðslu sjávarafurða. Virðing fyrir umhverfinu og lífríki sjávar er grundvöllur starfsemi Brims og lögð er áhersla á góða umgengni um auðlindina og ábyrgar fiskveiðar svo komandi kynslóðir geti notið hennar áfram. Brim hlaut Umhverfisverðlaun atvinnulífsins árið 2019.

„Blái herinn undir forystu Tómasar J. Knútssonar hefur unnið frábært starf í aldarfjórðung við að hreinsa fjörur af plasti og ekki síður með því að vekja athygli á mengun í hafinu. Brim leggur mikla áherslu á sjálfbærni og umhverfismál í sínu starfi og vill sýna í verki hvernig skilningur og virðing fyrir samfélagi og umhverfi fer saman við ábyrgan og arðsaman rekstur félagsins. Það fer því vel á að Brim gangi til liðs við Bláa herinn í baráttunni við plastmengun í hafinu,“ segir Kristján Davíðsson, stjórnarformaður Brims hf..

 

 

Deila: