Brim greiðir 1,9 milljarða í arð

81
Deila:

Aðalfundur Brims samþykkti í gær að á árinu 2020 verði vegna rekstrarársins 2019 greiddar 1,0 kr. á hlut í arð til hluthafa, eða 1.899 millj. kr. (um 14,0 millj. evra á lokagengi ársins 2019), eða 2,6% af markaðsvirði hlutafjár í lok árs 2019. Arðurinn verði greiddur 30. apríl 2020. Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 31. mars 2020 og arðleysisdagur því 1. apríl 2020. Arðsréttindadagur er 2. apríl 2020. Arður greiðist þeim sem skráðir eru í hlutaskrá félagsins í lok arðsréttindadags. Aðalfundurinn samþykkti ársreikning félagsins.

Í stjórn félagsins voru kjörin: Anna G. Sverrisdóttir, Guðmundur Kristjánsson, Kristján Þ. Davíðsson, Kristrún Heimisdóttir og Magnús Gústafsson. Á fyrsta stjórnarfundi nýrrar stjórnar skipti stjórnin með sér verkum og skipaði í nefndir. Formarður stjórnar er Kristján Þ. Davíðsson og varaformaður stjórnar Anna G. Sverrisdóttir.

Eftirfarandi tillaga um heimild stjórnar til kaupa á eigin bréfum var samþykkt:

„Aðalfundur veitir stjórn félagsins heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu. Heimild þessi stendur í 18 mánuði og takmarkast við að samanlögð kaup fari ekki yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma. Kaupgengi má eigi vera hærra en í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem hærra er. Aðrar eldri heimildir til kaupa á eigin bréfum falla úr gildi við samþykkt heimildar þessarar.“

Niðurstaða stjórnarinnar var að halda áfram að vega og meta kosti og galla tilnefningarnefnda sem og að fylgjast með framkvæmdinni hjá öðrum skráðum félögum. Því taldi stjórn ekki rétt á þessum tímapunkti að leggja til við hluthafafund að koma á fót tilnefningarnefnd

 

 

Deila: