Brim greiðir 2,3 milljarða í arð

117
Deila:

Aðalfundur Brims, sem haldinn var rafrænn í gær, samþykkti að arðgreiðsla á árinu 2021 vegna rekstrarársins 2020 verði 1,2 kr. á hlut í arð til hluthafa, eða 2.305 millj. kr. (um 14,8 millj. evra á lokagengi ársins 2020), eða 2,4% af markaðsvirði hlutafjár í lok árs 2020. Arðurinn verði greiddur 30. apríl 2021. Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 25. mars 2021 og arðleysisdagur því 26. mars 2021. Arðsréttindadagur er 29. mars 2021. Arður greiðist þeim sem skráðir eru í hlutaskrá félagsins í lok arðsréttindadags.

Fundurinn samþykkti óbreytta starfskjarastefnu og að þóknun næsta árs til stjórnarmanna verði 310.000 kr. á mánuði, varaformaður fái einn og hálfan hlut og formaður tvöfaldan hlut.

Stjórn félagsins var sjálfkjörin þar sem frambjóðendur voru jafnmargir og þeir stjórnarmenn sem kjósa á um á fundinum og samsetning stjórnar fullnægir ákvæðum laga og samþykkta félagsins um kynjahlutföll.

Stjórnina skipa: Anna G. Sverrisdóttir, Hjálmar Þ. Kristjánsson, Kristján Þ. Davíðsson, Kristrún Heimisdóttir og Magnús Gústafsson. Á fyrsta stjórnarfundi nýrrar stjórnar skipti stjórnin með sér verkum og skipaði í nefndir. Formaður stjórnar er Kristján Þ. Davíðsson og varaformaður stjórnar er Anna G. Sverrisdóttir.

Endurskoðunarnefnd skipa Gunnar Ásgeirsson formaður, Anna G. Sverrisdóttir og Kristrún Heimisdóttir.
Starfskjaranefnd skipa Magnús Gústafsson formaður, Kristján Þ. Davíðsson og Kristrún Heimisdóttir. Þóknun nefndarmanna í undirnefndum næsta starfsár verður 110.000 kr. á mánuði. Samþykkt var að endurskoðandi félagsins fyrir árið 2021 verði Deloitte ehf.

Samþykkt til kaupa á eigin hlutum

„Aðalfundur veitir stjórn félagsins heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu. Heimild þessi stendur í 18 mánuði og takmarkast við að samanlögð kaup fari ekki yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma. Kaupgengi má eigi vera hærra en í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem hærra er. Aðrar eldri heimildir til kaupa á eigin bréfum falla úr gildi við samþykkt heimildar þessarar.

 

 

Deila: