Byrjaði 15 ára á Barða NK

214
Deila:

Maður vikunnar er Norðfirðingur. Einn af aflasælustu skipstjórum landsins, sem mokar upp kolmunna, makríl, síld og loðnu, þegar kvóti er á henni.  Rjúpa er uppáhaldsmaturinn og draumafríið er í Malasíu.

Nafn:

Hjörvar Hjálmarsson.

Hvaðan ertu?

Neskaupstað.

Fjölskylduhagir?

Giftur Júlíu Sigrúni Ásvaldsdóttir. 3 dætur, Hrefna, Freydís og Sóley.

Við hvað starfar þú núna?

Skipstjóri á Berki NK 122.

Hvenær byrjaðir þú að vinna við sjávarútveg?

15 ára á Barða NK 120 (rosanum).

Hvað er það skemmtilegasta við að vinna við íslenskan sjávarútveg?

Að vera alltaf á tánum. Allur veiðiskapur er spennandi.

En það erfiðasta?

Mannskapsmál og íslenskt veðurfar.

Hvað er það skrýtnasta sem þú hefur lent í í störfum þínum?

Það var held ég að stunda síldveiðar á Breiðafirði. Líka mest spennandi.

Hver eftirminnilegasti vinnufélagi þinn?

Sveinn Benediktsson. Lærifaðir og mikill snillingur.

Hver eru áhugamál þín?

Veiðar, útivist og ferðalög.

Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?

Rjúpa.

Hvert færir þú í draumfríið?

Malasíu.

 

Deila: