Danir mæta sterkir til leiks

90
Deila:

Danir hafa alltaf mætt sterkir til leiks á Íslensku sjávarútvegssýningunni. Dönsku útflutningssamtökin senda þangað dönsk fyrirtæki og birgja af ýmsu tagi, sem framleiða fyrir fiskveiðar, fiskeldi og fiskvinnslur.

Árið 2021 ætlar ekki að verða nein undantekning og danski básinn verður með öflugan hóp af dönskum fyrirtækjum á Íslensku sjávarútvegssýningunni. Dönsku þátttakendurnir einkennast af mikilli fjölbreytni fyrirtækja sem útvega greininni tæknibúnað, lausnir og möguleika af ýmsu tagi.

Auk hefðbundinna framleiðanda veiðarfæra og tækjabúnaðs fyrir sjávarútveg, þá er meðal dönsku fyrirtækjanna að finna afa fjölbreyttan hóp sem einnig kemur með lausnir til að mæta þörfum fiskvinnslu- og fiskeldisgeiranna.

„Fiskviðar og fiskeldi hafa verið skýrt aðgreindir markhópar hingað til, en við sjáum fyrirtæki sem stefna að því að geta útvegað sérhæfðan búnað og þjónustu fyrir báða þessa geira,” segir Martin Winkel Lilleøre, fisktæknistjóri hjá Dönsku útflutningssamtökunum. Í samtali á heimasíðu sýningarinnar.

„Við sjáum að umfangið stækkar og með hefðbundinni nýsköpunarnálgun danskra fyrirtækja og vilja þeirra til samstarfs og til að deila þekkingu, þá tryggir þetta sterka stöðu danskra birgja gagnvart þessum greinum. Dönsk fyrirtæki hafa náð miklum árangri við að framleiða fyrir alþjóðlegan sjávarútveg og tengda vinnslugeira, og við erum í auknum mæli að sjá sömu þróunina innan fiskeldis – og það er mikill áhugi á dönskum lausnum innan fiskeldisgeirans.”

 

Deila: