Dómsmálaráðherra heimsækir Gæsluna

104
Deila:

Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, tók nýlega á móti Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, dómsmálaráðherra, og samstarfsfólki í flugskýli Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvelli. Áslaug Arna kynnti sér starfsemi Landhelgisgæslunnar, bæði í Reykjavík og á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.

Áslaug Arna fékk kynningu á starfsemi Landhelgisgæslunnar og helstu verkefnum.

Í flugskýlinu voru endurbætur eftirlitsflugvélinni TF-SIF og þyrlunni Líf skoðaðar, Árni Vésteinsson kynnti starfsemi siglingaöryggis- og sjómælingasviðs auk þess sem liðsmenn séraðgerða- og sprengjueyðingardeildar fóru yfir helstu verkefni og búnað sveitarinnar.

Jón B. Guðnason, tók á móti Áslaugu Örnu á öryggissvæðinu og sýndi stjórnstöð Atlantshafsbandalagsins sem rekin er af Landhelgisgæslunni auk þess sem svæðið sjálft var skoðað.

 

Deila: