Dönsk tækni verður áberandi á Íslensku sjávarútvegssýningunni

98
Deila:

Danish Export-Fish Tech (sem er hluti af Danska útflutningssambandinu) mun kynna stóran hóp danskra fyrirtækja á Íslensku sjávarútvegssýningunni 2021.

„Danish Export-Fish Tech er staðurinn þar sem þið fáið aðgang að meira en 100 dönskum birgjum sem útvega búnað, lausnir, tækni, kunnáttu og ráðgjöf. Danish Export-Fish Tech skipuleggur Danska sýningarskálann á Íslensku sjávarútvegssýningunni 2021, þar sem dönsku þátttakendurnir sýna dæmi um sérþekkingu sína, gæði og nýsköpun í búnaði, lausnum og tækni fyrir fiskveiðar, fiskeldi og vinnslu fisks og sjávarafurða.

Margra ára reynsla hefur fært dönskum birgjum mikla þekkingu og sérfræðikunnáttu varðandi þarfir og kröfur bæði í fiskveiðum og fiskeldi, sem hefur leitt af sér hugmyndaríkar, sjálfbærar, endingargóðar og fjárhagslega hagkvæmar lausnir fyrir greinina.

Aukin áhersla Íslensku sjávarútvegssýningarinnar 2021 á fiskeldi hefur opnað á breiðari hóp danskra birgja,“ segir í frétt frá sýningunni.

„Það veitir okkur mikla ánægju að koma með hóp sérfræðinga á Íslensku sjávarútvegssýninguna nú í ár, bæði úr veiðum, eldi og vinnslu til þess að taka þátt í samræðum við íslenska og alþjóðlega aðila sem hafa hagsmuna að gæta og koma að ákvörðunartöku þar rætt yrði um tækifæri og áskoranir í greininni á Íslandi og í Norður-Atlantshafi,” segir Martin Winkel Lilleøre, yfirmaður Danish Export-Fish Tech.

„Ef þú setur þig í sambandi við einn af dönsku birgjunum í sýningarskála Danmerkur færðu bæði góða þjónustu og gæðavörur og lausnir.”

Deila: