Egersund Ísland þjónustar fiskeldið

155
Deila:

Þjónusta við laxeldi hefur á skömmum tíma vaxið upp í að verða helmingur af starfsemi stærsta netaverkstæðis Austfjarða. Þessi nýjasta viðbót kom inn á sama tíma og hrun varð í loðnuveiðum.

Í fréttum Stöðvar 2 í gær var fjallað um Egersund Ísland á Eskifirði. Upphaflega var það Aðalsteinn Jónsson, Alli ríki, sem stofnaði netaverkstæðið fyrir aldarfjórðungi til að sinna eigin skipaflota. Eskja seldi það síðan og er fyrirtækið núna í eigu framkvæmdastjórans Stefáns Ingvarssonar og Egersund Group í Noregi.

Lengst af þjónaði fyrirtækið einkum uppsjávarveiðum og þá var netaverkstæðið fullt af flottrollum og loðnunótum. Í vinnusal Egersund má núna merkja nýjasta vaxtarsprotann, fiskeldið.

Laxeldispokar úr sjókvíum eru teknir í land eftir hverja kynslóð, þvegnir og skoðaðir ítarlega og eftir atvikum endurnýjaðir og litaðir. Hjá Egersund var reist bæði litunarhús og þvottastöð til að mæta þessum nýju verkefnum.

„Heildarfjárfestingin í kringum þessa viðbót vegna laxeldisins hleypur einhversstaðar á milli 300 og 400 milljónir. Svo það er töluvert mikil vinna sem hefur fylgt því, í uppbyggingu, fyrir iðnaðarmenn og aðra í samfélaginu,“ segir Hrafn Bjarnason, gæða- og verkefnisstjóri.

Hrafn Bjarnason

Fyrirtækið sinnir jafnframt tækniþjónustu fyrir laxeldið, eins og við fóðurpramma. Fyrir samfélagið hefur þetta mikla þýðingu því Egersund er einn af stærri vinnustöðum á Eskifirði.

„Við erum sextán til sautján, eins og staðan er núna. Þar af eru með beinum hætti að minnsta kosti átta til níu manns sem vinna beint við laxeldið,“ segir Hrafn.

Þessi viðbót kom inn á sama tíma og loðnan brást

„Loðnuvertíðin hefur staðið undir talsvert mikilli vinnu hjá okkur á hverju ári. Laxeldið kemur inn og má segja jafni ástandið. Þannig að við urðum ekki fyrir vinnutapi.“

Svo vonast þeir auðvitað eftir góðri loðnuvertíð í vetur.

„En með aukningu í loðnukvóta þá munum við þurfa að bæta við okkur talsvert af starfsmönnum. Og þá munu þessir átta starfsmenn sem vinna í laxeldinu vera hrein viðbót við það sem áður var,“ segir Hrafn í samtalinu við Stöð 2.

Deila: