Eimskip hefur endurkaup hlutabréfa

Deila:

Stjórn Eimskips hefur tekið ákvörðun um að hefja endurkaup hlutabréfa fyrirtækisins fyrir allt að 500 milljónir króna. Endurkaupin munu að hámarki nema 3.125.000 hluta eða um 1,6% af útgefnum hlutum í félaginu. Gert er ráð fyrir að endurkaup samkvæmt áætluninni hefjist í dag, 2. desember og mun áætlunin vera í gildi fram til 24. janúar 2020, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma. Endurkaupin eru í samræmi við samþykktir félagsins frá júlí 2018.

Samkvæmt tilkynningu frá Eimskip segir að gengi á hlut skuli ekki vera hærra en hæsta gengi af eftirfarandi; lokagengi síðasta viðskiptadags, síðustu óháðu viðskipta eða í hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði á þeim markaði sem viðskipti eru átt með hlutabréf í Eimskip. Hámarksmagn hvers viðskiptadags er fjórðungur af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf félagsins á aðalmarkaði í nóvember 2019. Hámarksfjöldi leyfilegra hluta á hverjum viðskiptadegi verður því 69.185.

„Endurkaupaáætlun verður framkvæmd af Íslandsbanka sem tekur allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna, óháð félaginu. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005. Viðskipti með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram,“ segir í tilkynningunni frá Eimskip.

 

Deila: