Eimskip hlýtur jafnlaunavottun

99
Deila:

Eimskip hefur hlotið jafnlaunavottun sem er staðfesting á því að jafnlaunakerfi félagsins standist kröfur jafnlaunastaðalsins ÍST 85:2012. Eimskip hefur innleitt verklag og skilgreint launaviðmið til að tryggja að starfsfólk fái greitt jöfn laun fyrir jafnverðmæt störf óháð kyni eða öðrum ómálefnalegum sjónarmiðum.

„Það gleður okkur hjá Eimskip að hafa náð þeim áfanga að hljóta jafnlaunavottun. Það er okkur mikilvægt að allir starfsmenn fái greidd jöfn laun og njóti sömu starfskjara fyrir jafnverðmæt störf. Það að innleiða jafnlaunakerfið hjálpar okkur að viðhalda þeim árangri sem við höfum náð og jafnframt að gera enn betur,“ segir Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri Eimskips

Á myndinni eru Elín Hjálmsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs Eimskips og Falasteen Abu Libdeh, sérfræðingur á mannauðssviði.

 

Deila: