Ekki neyddir til að vinna veikir

111
Deila:

Margir skipverjanna á Júlíusi Geirmundssyni eru enn óvinnufærir eftir að hafa veikst af kórónuveirunni um borð fyrr í vetur. Sjópróf voru við Héraðsdóm Vestfjarða á Ísafirði í dag vegna málsins. Skipverjar sögðust þar ekki hafa verið neyddir til að vinna á meðan þeir voru veikir. Þeir hafi hins vegar ekki haft samvisku í að liggja lengi í koju á meðan vaktin var undirmönnuð.

Þetta kemur fram á visir.is Lögmaður stéttarfélaga sjómannanna sem fóru fram á sjópróf segir að færa þurfi vinnumenningu á skipum og viðhorf til sjómanna á annan stall.

„Þetta er mórall sem er búinn að vera um borð í íslenskum fiskiskipum um áratugaskeið. Menn vita það, eins og kom fram í sjóprófunum í dag, að ef þú hlýðir ekki fyrirmælum eða ferð inn í koju veikur eða vinnur ekki þína vinnu, þá eru miklar líkur á því að þú missir plássið,“ segir Jónas Þór Jónasson, lögmaður stéttarfélaganna.

Hann segir þá liggja ljóst fyrir að sjómennirnir hafi veikst mismikið en það segi þó ekki alla söguna. Sumir sjómannanna glími enn við eftirköst þess að hafa sýkst af kórónuveirunni. Sumir séu enn óvinnufærir og kunni að hafa orðið fyrir varanlegu heilsutjóni.

„Við megum ekki leyfa okkur að tala um þetta á óviðurkvæmilegan hátt eða af einhverju léttúð. Við þurfum að taka þetta mjög alvarlega og vonandi verður þetta mál til þess að við getum komið þessum málum, varðandi kúltúr og framkomu gagnvart skipverjum á íslenskum fiskiskipum á annan stall.

Fulltrúar Hraðfrystihússins Gunnvarar, útgerðarinnar sem gerir út Júlíus Geirmundsson, hafa ekki viljað tjá sig um málið við fréttastofu, þar sem það er einnig til rannsóknar hjá lögreglu. Þar hefur skipstjóri skipsins stöðu sakbornings.

Lögreglan á Vestfjörðum hefur gefið út að rannsókn málsins sé á lokastigi og að innan tíðar komi í ljós hvort lengra verði farið með málið.

 

Deila: