Félagsfundur í Fonti

Deila:

Smábátafélagið Fontur hefur boðað til félagsfundar á morgun, fimmtudaginn 4. ágúst.  Fundurinn verður haldinn í Þórsveri á Þórshöfn og hefst kl. 16:00.

Á dagskrá fundarins  verða tvö mál.

  1. Lagðar fram til kynningar drög að nýjum samþykktum Fonts
  2. Fyrirhugaðar breytingar á strandveiðikerfinu

Allir smábátaeigendur á starfssvæði Fonts eru boðnir velkomnir en tillögu- og atkvæðisréttur er skilyrtur við félagsaðild.

 

Deila: