Fisk Seafood kaupir bát og kvóta fyrir 1,8 milljarða

136
Deila:

Gengið hefur verið frá samningi um kaup FISK Seafood á útgerðarfélaginu Ölduósi ehf. á Höfn í Hornafirði og um leið á krókaaflamarksbáti félagsins, Dögg SU 118. Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Aflaheimildir Daggar eru um 700 þorskígildistonn og eru heildarverðmæti viðskiptanna ríflega 1.8 milljarður króna. Dögg hefur til þessa verið gerð út frá Stöðvarfirði munu seljendur bátsins ljúka þessu fiskveiðiári með áhöfn sinni áður en afhending hins selda fer að fullu fram.

Með kaupunum styrkir útgerð FISK Seafood rekstur sinn og hlutdeild í bolfiskvinnslu félagsins. Þorskveiðikvótinn eykst um tæplega 5% og gera má ráð fyrir að viðbótaraflinn samsvari tveggja til þriggja vikna afkastagetu landvinnslu FISK Seafood á Sauðárkróki og Snæfellsnesi. Dögg SU 118 er smíðuð hjá Trefjum árið 2007. Báturinn er tæplega 15 brúttótonn, 11,5 brúttórúmlestir og ríflega 11 metrar að lengd.

„Með þessum viðskiptum er FISK Seafood að fikra sig inn í smábátaútgerð á línu og skak og ef vel tekst til munum við halda áfram að byggja okkur upp á því sviði. Vertíðarbátarnir yrðu kærkomin viðbót við það aukna líf sem höfnin hér á Sauðárkróki hefur öðlast á undanförnum árum og þetta fyrsta skref með kaupunum á Dögg verður strax mikil styrking fyrir landvinnsluna og verðmætin sem hún er að skapa á hverjum degi,“ segir Friðbjörn Ásbjörnsson, framkvæmdastjóri FISK Seafood.

 

Deila: