Fiskibaka

Deila:

Fiskibökur eru líklega ekki algengar á borðum okkar Íslendinga, en þær geta verið ansi fjölbreyttar og góðar. Hér kemur uppskrift af einni slíkri. Uppskriftin er fyrir fjóra. Verði ykkur að góðu.

Innihald:

Yfirbreiðsla:

1 kg. soðnar kartöflur

200ml rjómi

50ml mjólk

50g rifinn ostur

50g rifinn parmesan ostur

Fiskurinn:

100g smjör

3 blaðlaukar, ljósi hlutinn smátt sneiddur

¼ tsk. múskatduft

1½ msk. sinnep

100ml hvítvín

200ml rjómi

½ búnt af graslauk, saxað

½ sítróna, safi og börkur

125g roð- og beinlaus ýsa í stórum bitum

125g roð- og beinlaus lax í stórum bitum

125g hráar risarækjur

Aðferð:

Sjóðið kartöflurnar og flysjið þær. Setjið í skál og stappið saman með mjólk og rjóma. Kryddið og leggið til hliðar.

Setjið stóra pönnu á helluna og stillið á miðlungshita. Bræðið smjörið og mýkið á pönnunni. Bætið þá múskatinu út á, hrærið sinnepinu samanvið . Hellið þá víninu út á og láti sjóða vel niður. Bætið þá rjómanum út í og látið krauma í um 10 mínútur. Takið pönnuna af hitanum og hrærið graslauknum sítrónusafa og berki saman við. Smakkið til.
Hrærið ýsunni, laxinum og rækjunum út á pönnuna og færið blönduna síðan í ofnfast mót. Jafnið kartöflumaukinu yfir og dreifið ostinum yfir maukið. Bakið í ofni við 108°C hita í 25-30 mínútur eða þar til yfirbreiðslan er orðin fallega gullin.
Berið fram með fersku salati og góðu brauði.

Deila: