Fiskistofa eykur rafræna þjónustu

Deila:

Fiskistofa mun frá og með 1. febrúar næstkomandi hætta að senda útgerðum tölvupóst vegna tilkynninga ef skip hafa veitt umfram aflaheimildir. Útgerðir fá slíkar tilkynningar þess í stað í pósthólf á island.is, að því er fram kemur í frétt Fiskistofu, óháð því hvort þær hafi skráð netfang hjá fiskistofu. Einnig munu tilkynningar um veitingu vilyrða vegna aflaskráningar á opinberum sjóstangaveiðimótum og tilkynningu um niðurfellingu veiðileyfa eingöngu vera send í stafrænt pósthólf á island.is.

Frá og með 1. febrúar nk. munu eftirfarandi gögn og erindi frá Fiskistofu einungis vera send á stafrænt pósthólf viðskiptavina:

  1. Leiðréttingar vegna veiðigjaldaLeiðbeiningar frá veiðieftirliti vegna fiskveiða
  2. Upplýsingar um eftirstöðvar veiðiskyldu
  3. Tilkynningar um upphaf máls
  4. Ákvarðanir um stjórnsýsluviðurlög
  5. Tilkynningar um leiðréttingu á aflaskráningu
  6. Tilkynningar um veiðigjöld
  7. Tilkynningar um úthlutun aflamarks
  8. Tilkynningar um umframafla á fiskveiðiári og álagningu
  9. Tilkynningar um umframafla á strandveiðum og álagningu
  10. Leiðbeiningar til veiðifélaga
  11. Tilkynningar um að skip hafi veitt umfram aflaheimildir
  12. Veiting vilyrða vegna aflaskráningar á opinberum sjóstangaveiðimótum
  13. Niðurfelling veiðileyfa

Stórt skref í rafrænni þjónustu
„Fiskistofa beinir þeim tilmælum til viðskiptavina sinna að fylgjast vel með pósthólfinu og gæta þess að hnipp þjónusta pósthólfsins sé virk, en með henni eru viðtakendur látnir vita með tölvupósti ef nýtt skjal bíður þeirra í pósthólfi. Samþætting við pósthólf island.is er stórt skref í stafrænum samskiptum við viðskiptavini Fiskistofu og minnkar pappírsnotkun í samræmi við græn skref stofnunarinnar,“ segir á vef Fiskistofu.

Deila: