Fiskistofa tekur „græn skref“

104
Deila:

Fiskistofa tekur þátt í verkefninu Græn skref. Fiskistofa er stolt af því að á dögunum var þriðja skrefið stigið á öllum starfstöðvum stofnunarinnar. Í þriðja skrefinu felst m.a. að Fiskistofa færir grænt bókhald, hugar að umhverfismálum í innkaupum og viðburðahaldi, flokkar úrgang og er með aðgerðir til að minnka sóun.  Grænu skrefin eru fimm og stefnum við að því að ljúka þeim fyrir árslok 2021.

Deila: