Fiskrétturinn sem heillar fiskvinnslufólkið

Deila:

Faney Davíðsdóttir, matráður í fiskvinnsluhúsi Samherja á Dalvík gefur á vef fyrirtækisins uppskrift að fiskrétti sem nýtur mikilla vinsælda hjá starfsmönnum en að jafnaði eru um 120 manns í mat í mötuneytinu.

Fiskur tvisvar í viku
„Við erum með fisk á boðstólum tvisvar sinnum í viku og það segir sig auðvitað sjálft að hráefnið hérna er alltaf ferskt sem er auðvitað mikill kostur. Fiskurinn nýtur vinsælda hjá flestum og auk þess finnst mér alltaf gaman að elda fisk,“ segir Fanney.
„Pabbi og mamma eru mikið fyrir að prófa sig áfram í alls konar fiskréttum og þessi uppskrift er einmitt frá þeim. Upphaflega voru þau með skötusel en þorskhnakkar eru ekkert síðri og auk þess er mun auðveldara að verða sér úti um góða þorskhnakka allan ársins hring. Siggi yfirverkstjóri spyr okkur reglulega hvort ekki fari að styttast í þennan rétt. Hann er greinilega hrifinn, enda með vel þjálfaða bragðlauka þegar fiskur er annars vegar. Þessi réttur hefur sannarlega slegið í gegn hjá þorra starfsfólksins og það er auðvitað frábært og skemmtilegt.“

Skötuselur/þorskhnakkar a la Davíð og Vilborg 


Sósu-jukk
1 gul paprika söxuð – smátt
½ laukur saxaður – smátt
ca 6 meðalstórir sveppir – saxaðir smátt.

Þetta er steikt í olíu og smá smjöri (smjörva) á pönnu. Kryddað með slatta af karrí og blönduðum piparkornum og salti. (Smakka vel)

1 rjómaostur með sólþurrkuðum tómötum settur saman við grænmetið ásamt
1 lítil dós kókosmjólk
¼ rjómi
1 msk kókosmjöl

Sósan er þykkt svolítið með ljósum sósujafnara þannig að þetta verði líkara leðju en sósu.
Smakka vel og e.t.v. krydda meira. Sósu-jukkinu er hellt í eldfast fat.

Fiskurinn
Ca. 800 gr. Þorskur/skötuselur skorinn í ca 1.5 cm sneiðar.

Fiskinum er velt upp úr eggi og mjólk og síðan blöndu af brauðraspi og kókosmjöli (jöfn hlutföll) + salt. Steikt í olíu á pönnu í stutta stund, ca. 1-2 mín á hvorri hlið. Skötuselnum/þorskinum er næst raðað þétt ofan á jukkið. Í lokin er sósan sett með teskeið smá af Mango Chutnay ofan á hvern fiskbita.
Sett inn í 170 gr heitan bakaraofn í ca 8-12 mín.

ATH:
Hægt er að gera þennan rétt með einhverra klukkutíma fyrirvara og eiga bara eftir að setja hann í ofninn og þá kannski aðeins lengur ef hann er alveg kaldur. Passa samt vel að ofelda ekki skötuselinn. Ef notaður er þorskur er fiskurinn ekki eins viðkvæmur fyrir ofeldun.

Meðfylgjandi er mynd af Fanney á vinnustað sínum í mötuneyti Samherja á Dalvík. Mynd: Samherji

Deila: