Fiskverð hækkar

Deila:

Verð á fiski upp úr sjó í beinum viðskiptum hefur verið hækkað. Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 3. september 2019, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

Óslægður þorskur hækkar um 5%

Óslægð ýsa hækkar um 5%

Ufsi hækkar um 3,5%

Karfi hækkar um 4,5%

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tók gildi 3. september 2019.

 

Deila: