Fjórum bjargað af strönduðum bát

Deila:

Fjórum mönnum var bjargað um borð í TF-EIR, þyrlu Landhelgisgæslunnar, eftir að fiskibátur strandaði í vestanverðum Þistilfirði.

Það var á fimmta tímanum í nótt sem áhöfnin á línubátnum Lágey ÞH-265 hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar og óskaði eftir aðstoð. Báturinn var þá strandaður um miðja vegu milli Þórshafnar og Raufarhafnar. Lágey er 15 tonna yfirbyggður trefjaplastbátur og um borð voru fjórir skipverjar.

Veður var með ágætum á strandstað, logn og gott skyggni. Áhöfnin á TF-EIR var þegar í stað kölluð út sem og sjóbjörgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Björgunarskipið Gunnbjörg og línubáturinn Háey frá Raufarhöfn héldu á staðinn sem og slöngubáturinn Jón Kr. frá Þórshöfn.

Vel fór um áhöfn fiskibátsins meðan beðið var eftir aðstoð en vegna myrkurs komst áhöfnin ekki í land. Þegar þyrla Landhelgisgæslunnar kom á staðinn hófst áhöfn þyrlunnar þegar handa við að koma mönnunum frá borði. Það gekk vel og örfáum mínútum eftir að þyrlan kom á strandstað, eða laust eftir klukkan sjö, voru mennirnir fjórir komnir um borið í TF-EIR.

Flogið var með áhöfnina til Akureyrar en björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar hófust handa við að koma bátnum aftur á flot. Það gekk vel og nú á tólfta tímanum er björgunarskipið Gunnbjörg með Lágey í togi áleiðis til Raufarhafnar. Á slóðinni hér að neðan má sjá myndband Gæslunnar af björgun skipverja.

https://youtu.be/Hqoj2c95ll0

 

Deila: