Flest fiskiskip eru með landtengingu

Deila:

„Stutta svarið er að flest fiskiskip eru landtengd í höfnunum, en tengingar fyrir flutningaskip eru ekki fyrir hendi. Það á við um landið allt. Í öllum meginhöfnum er rafmagnstengingar fyrir fiskiskipin,“ segir Gísli Gíslason, formaður Hafnasambands Íslands.

Gísli segir að það séu um 40 ár síðan hafnir landsins hafi byrjað að bjóða upp á landtengingar fyrir fiskiskipin. Þau noti svokallaða millispennu, sem dugi allflestum skipum, en frystiskipin þurfi meira afl. Þau þurfi í rauninni háspennu og það sama eigi við um flutningaskipin.

„Aflið sem flutningaskipin og frystiskipin þurfa kann að vera viðráðanlegt fyrir einhverjar hafnir að bjóða upp á. Það er takt við aðgerðaráætlun sem unnin hefur verið fyrir atvinnuvegaráðuneytið. Þá er talað um að nýta betur þau kerfi eru fyrir hendi. Ég held reyndar að þau séu ágætlega nýtt, en þó megi gera betur í skipum, sem ekki hafa verið að taka tengingar. Það er ekki stór hluti flotans. Síðan hefur verið lagt til, ef farið verður í háspennutengingar, miðað við þrjú til fimm megavött sem myndi duga flutningaskipunum og frystiskipunum. Sá áfangi sér raunhæfari en að bjóða upp á landtengingar fyrir stærstu farþegaskipin. Þau þurfa miklu meira rafmagn, 10 til 15 megavött. Búnaður til þess er einnig miklu dýrari en fyrir hin skipin,“ segir Gísli.

Gísli segir að nokkrar útgerðir nýrri skipa hafi verið að nota skipagasolíu á skipin en einnig séu mörg fiskiskip að nota svartolíu, en hafi möguleika á því. Hann telji því að átaksverkefnið í þessum málum muni snúast um flutningaskip og fiskiskip og það  sé viðráðanlegt í einhverjum mæli.

Fyrirliggjandi er reglugerð um eldsneyti en þar eru mörkin nú 3,5% brennisteinsinnihald, en lægri mörk eru á farþegaskipunum, eða 1,5%. Um næstu áramót taka gildi alþjóðlegar reglur um að brennisteinsinnihald megi ekki vera yfir 0,5%. Inni á samráðsgáttinni tillaga frá samgönguráðuneytinu að reglugerð sem felur það í sér að innan 12 mílna megi innihald brennisteins ekki fara yfir 0,1%, sem er það sama við strendur Eystrasaltsins, Bandaríkjanna og víðar. Það nánast útilokar brennslu svartolíu, en krefst þess að dregið verði verulega úr innihaldi snefilefna, sem eru í eldneytinu.

Deila: