Flutningur hlutdeilda fyrir áramót
Um komandi áramót lýkur veiðitímabili þeirra fisktegunda þar sem veiðitímabilið er almanaksárið.
Þessar tegundir eru: Norsk-íslensk síld, kolmunni, úthafskarfi, Barentshafsþorskur, Flæmingjarækja, Eldeyjarrækja og síðast en ekki síst makríll.
Fiskistofa minnir útgerðaraðila á að umsóknir um millifærslu hlutdeilda með öllum fylgigögnum verða að berast fyrir lok dags 16. desember ef þær eiga að hafa áhrif á úthlutun um áramót sbr. 3. mgr. 12. gr. reglugerðar nr. 674/2019 um veiðar í atvinnuskyni.
Samkvæmt 15. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða skulu tilkynningar um flutning á aflamarki í þessum tegundum hafa borist Fiskistofu eigi síðar en 15 dögum eftir að veiðitímabili lýkur.