Fryst af fullum krafti

99
Deila:

Í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað er loðna ennþá fryst af fullum krafti en brátt líður að því að hrognavinnsla hefjist. Í gærmorgun var lokið við að frysta 1380 tonn úr Berki NK og þá var Beitir NK kominn með 1150 tonn. Tómas Kárason skipstjóri á Beiti segir að loðnan sem fékkst í veiðiferðinni sé fínasta Japansloðna.

„Við fengum aflann á Meðallandsbugtinni og tókum síðan í lokin eitt 300 tonna kast á Kötlutanganum. Þetta er gæðaloðna og til dæmis í síðasta kastinu var yfir 60% hrygna og hrognafyllingin 18%. Á mánudagskvöldið var töluvert mikið að sjá af loðnu á þeim slóðum sem við vorum á en síðan gekk hún upp í fjöruna. Það var heldur óhagstætt að eiga við hana í túrnum vegna þess að hann blés úr austri og gerði okkur erfitt fyrir. Spurningin er hvort næsti túr verður ekki hrognatúr,“ segir Tómas í samtali á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Beitir NK á loðnumiðunum með 730 tonna kast. Ljósm. Bjarni Hafsteinsson

 

Deila: