Fullkomnasta fiskiðjuver í heimi

Deila:

Á Grundarfirði er verið að reisa eitthvert fullkomnasta fiskiðjuver í heimi. Það er Grun.hf. sem er að reisa fiskiðjuverið. Þar er samfélagsleg ábyrgð í hávegum höfð lögð áhersla á byggja upp í heimabyggð. Stjórnarformaður Grun hf. er maður vikunnar á kvótanum.

Nafn?

Runólfur Guðmundsson.

Hvaðan ertu?

Grundarfirði.

Fjölskylduhagir?

Eiginkona Edda Svava Kristjánsdóttir. Börn Vignir Már Runólfsson og María Runólfsdóttir.

Hvar starfar þú núna?

Stjórnarformaður Guðmundar Runólfssonar Hf.(Grun.hf)

Hvenær hófst þú vinnu við sjávarútveg?

1962  þá 14 ára.

Hvað er það skemmtilegasta við að vinna við íslenskan sjávarútveg?

Öll vinna er tengist sjávarútvegi er frábær.

En það erfiðasta?

Langerfiðast er stöðug óvissa hvað varðar stjórnvöld.

Hvað er það skrýtnasta sem þú hefur lent í í störfum þínum?

Veiðar á þorski í landgildrur.

Hver eftirminnilegasti vinnufélagi þinn?

Kristbjörn Rafnsson.

Hver eru áhugamál þín?

Sjávarútvegur.

Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?

Þverskorin ýsa með hamsatólg.

Hvert færir þú í draumfríið?

Næst þvert yfir Atlantshafið.

 

Deila: