Fundað um sjávarfallaspár og hækkun sjávarborðs

97
Deila:

Kunnátta og þekking á fræðasviðinu sem sjávarfallaspár hvíla á er mikilvæg fyrir okkur Íslendinga. Sama á við um öflin og kraftana sem stýra sjávarföllum. Þar er kunnátta og þekking sömu leiðis mikilvæg fyrir eyþjóð í Norður Atlantshafi.

Þá má einnig vísa til hækkunar sjávarborðs vegna hnattrænnar hlýnunar. Hér á landi er nauðsyn að stunda rannsóknir á því sviði, afla upplýsinga og byggja þannig undir þekkingu í þeirri viðleitni að sjá fyrir hvað muni gerast.

Undir North Sea Hydrographic Commision (NSHC), sem er eitt af undirráðum Alþjóðasjómælingastofnunarinnar (IHO), starfa nokkrar vinnunefndir. NSHC-Tidal Working Group hittist á fundi haldinn hér í Reykjavík hjá Landhelgisgæslunni í byrjun febrúarmánaðar. Til fundarins voru boðnir, auk sérfræðinga frá aldarlöndum NSHC, fulltrúar frá Veðurstofunni og Vegagerðinni. Er það von Íslendinganna að framhald verði á samtali þessara stofnanna enda eru m.a. forsendur fyrir spá um breytingu á sjávarborði áfátt á Íslandi. Það er von okkar sem sátu þennan áhugverða fund f.h. Íslands að með frekara samstarfi þessara stofnanna, og fleiri, verði lagður grunnur að nýju og betra „núlli“.

Vefur IHO er www.iho.int

Ný vefur fór í loftið nú um áramótin. Áhugasamir geta óskað eftir aðgangi að fundargögnum og fleiru eins og fram kemur þegar smellt er á „DOCUMENT ARCHIVE“ hægra megin efst á forsíðu IHO vefsins.

Á sérvef North Sea Hydrographic Commission: http://nshc.pro/ eru m.a. upplýsingar um Tidal working Group.

 

Deila: