Fundir um framtíðarsýn í fiskeldi á Vesfjörðum

99
Deila:

Fundir Vestfjarðastofu um framtíðarsýn í fiskeldi á Vestfjörðum verða haldnir 20. og 21. september. Á fundunum verður Samfélagssáttmáli og framtíðarsýn fyrirtækja í fiskeldi á Vestfjörðum til umfjöllunar auk þess sem þar verður vettvangur til að ræða þróun atvinnugreinarinnar frá öllum hliðum.

Sveitarfélögin Bolungarvíkurkaupstaður, Ísafjarðarbær, Strandabyggð, Súðavíkurhreppur, Tálknafjarðarhreppur og Vesturbyggð undirrituðu samfélagssáttmála í fiskeldi 15. júlí 2021 sem unnið var að í samstarfi við Vestfjarðastofu. Tilgangur sáttmálans er að standa sameiginlega að hagsmungæslu í fiskeldi og tengdum atvinnugreinum á Vestfjörðum með að markmiði að efla atvinnu- og mannlíf með heildarhagsmuni Vestfjarða að leiðarljósi.

20. september kl. 19:30 – Félagheimili Patreksfjarðar
Fundarstjóri – Ólafur Sveinn Jóhannesson
21. september kl. 19:30 – Edinborgarhúsinu Ísafirði
Fundarstjóri – Héðinn Unnsteinsson

Dagskrá

  • Ávarp
  • Kynning á samfélagssáttmála um fiskeldi
  • Kynning á skýrslu KPMG um greiningu á áhrifum fiskeldis á Vestfjörðum
  • Erindi frá Hafrannsóknarstofnun
  • Erindi frá Matvælastofnun
  • Erindi um stöðu fiskeldis á Vestfjörðum
  • Kynningar frá fyrirtækjum tengdum fiskeldi
  • Pallborðsumræður

Fundirnir eru öllum opnir en vegna sóttvarnareglna er mikilvægt að skrá sig á fundina

SKRÁNING FER FRAM HÉR

Deila: