Fyrirhuguð samningsgerð við Fisktækniskóla Íslands

92
Deila:

Mennta- og menningarmálaráðuneyti hyggst gera samning við Fisktækniskóla Íslands með fyrirvara um staðfestingu fjármála- og efnahagsráðherra. Fyrirhuguð samningsgerð er um fisktækninám og annað nám tengt því. Samningurinn er til 5 ára og gerður á grundvelli 44. gr. framhaldsskólaga nr. 92/2008 og 40. gr. laga um opinber fjármál nr. 123/2015. Áætlað er að samningurinn muni taka gildi 1. ágúst 2021 og að árlegt framlag á grundvelli hans verði 71 m.kr.

Athugasemdir við þessa fyrirhuguðu samningsgerð skulu berast ráðuneytinu innan 14 daga frá birtingu þessarar tilkynningar. Athugasemdir skulu berast á mrn@mrn.is

 

Deila: