Gengur vel á strandveiðum

80
Deila:

Strandveiðarnar hafa farið vel af stað í maí. Afli fyrir tvær vikurnar, 7 veiðidaga, 1.365 tonn, sem er 398 tonnum meira en á sama tíma í fyrra. Bátarnir eru fleiri nú og landanir að sama skapi líka.

Alls hafa bátarnir landað 2.090 sinnum, sem er 603 löndunum meira en í fyrra. Afli á bát nú er 2.930 tonn og meðalafli í róðri 653 kíló.

Deila: