Gert klárt fyrir fyrsta túr

185
Deila:

Áhöfnin á nýja Berki er önnum kafin við að gera skipið klárt fyrir fyrstu veiðiferðina. Tíðindamaður heimasíðu Síldarvinnslunnar fór um borð í gærmorgun og spjallaði við skipstjórana Hálfdan Hálfdanarson og Hjörvar Hjálmarsson.

Hjá þeim kom fram að stefnt væri að því að skipið héldi til kolmunnaveiða fyrir helgina. Hálfdan taldi sennilegt að veitt yrði austur af Færeyjum en nefndi þó að Beitir NK hefði farið út á mánudaginn og verið að kanna möguleika á kolmunnaveiði innan íslenskrar lögsögu.

„Við tókum trollin um borð í gær og nú er verið að ganga frá ýmsu sem tengist veiðarfærunum og ýmsum búnaði. Það er að mörgu að hyggja. Venjulega eru átta um borð þegar veitt er með trolli en á skipinu er tvöföld áhöfn og í þennan fyrsta túr fara allir, þannig að gera má ráð fyrir sextán um borð. Megintilgangurinn með fyrstu veiðiferðinni er að kanna hvort allt virki og læra á skipið. Það er mikilvægt að allir læri á skipið strax. Ég er viss um að allt á eftir að ganga eins og í sögu. Það hefur allavega allt gengið frábærlega vel hjá systurskipinu Vilhelm Þorsteinssyni EA,“ segir Hálfdan.

Áhöfnin á Berki var önnum kafin í gærmorgun við að gera klárt fyrir fyrstu veiðiferð. Ljósm. Smári Geirsson

Þeir Hálfdan og Hjörvar segja að það sé virkilega spennandi að hefja veiðar á þessu glæsilega skipi. Segjast þeir gera sér vonir um að lenda í einhverju fiskiríi en megintilgangurinn í fyrstu veiðiferð sé þó sá að kanna hvernig allt virkar um borð og þjálfa áhöfn.
Á efri myndinni eru skipstjórarnir Hjörvar og Hálfdan, en myndina tók Guðlaugur B. Birgisson.

Deila: