Gísli Súrsson dreginn í land

266
Deila:

Það er mikið búið að ganga á hjá skipverjum á Gísla Súrssyni GK undanfarna sólahringa. Fyrst  fengu þeir í skrúfuna og voru síðan dregnir í land af Vésteini GK sem er i eigu sömu útgerðar, Einhamars í Grindavík. Loks fótbrotnaði skipverji um borð.

Í gær dag tók steininn úr þegar báturinn varð vélavana og var björgunarbáturinn Hafbjörg i eigu Landsbjargar  fenginn til að sækja hann og töldu skipverjar að skrúfan væri jafnvel horfin af bátnum

Ljósmynd Guðlaugur Björn Birgisson.
Frétt af skipasíðunni  http://thorgeirbald.123.is/

 

 

Deila: