Góð verkefnastaða Slippsins

181
Deila:

Verkefnastaða Slippsins Akureyri hefur verið góð undafarna mánuði og útséð að hún haldist þannig út árið. Auk Frosta ÞH sem Slippurinn annast nú m.a. endurnýjun vinnslubúnaðar skipsins, þá eru frystitogararnir Arnar HU og Hrafn Sveinbjarnarson GK við viðlegukantinn en útgerðirnar Fisk Seafood og Þorbjörn gera skipin út.

Í Arnari HU var skipt um allar legur í togspili, skipið heilmálað og öxuldregið, upptekt á skrúfuhaus ásamt breytingum og smíði á nýjum búnaði fyrir vinnsludekkið. Kælismiðjan Frost hefur einnig unnið við breytingar á frystikerfinu í skipinu og aðstoðaði Slippurinn við að koma eldri búnaði frá borði og smíða undirstöður fyrir nýjan búnað.

Hrafn Sveinbjarnarson kom í Slippinn fyrir rúmum tveimur vikum síðan en til stendur að aðstoða Kælismiðjuna Frost við niðurrif á frystikerfinu í skipinu, smíða nýtt frystivélarrými, mála vinnsludekkið í skipinu ásamt öðrum minniháttar viðhaldsverkefnum.

Uppsjávarskipið Sighvatur Bjarnason VE sem er í eigu Vinnslustöðvarinnar er í dráttarbrautinni þar sem ætlunin er að gera skipið klárt fyrir komandi loðnuvertíð.

Sveinbjörn Pálsson nýráðinn sviðsstjóri skipaþjónustu Slippsins Akureyri er ánægður með stöðu mála þessar vikurnar.

„Verkefnastaðan er góð en sökum stærðar okkar við höfum þó yfirleitt tök á því að bæta við okkur verkefnum, komi upp þannig aðstæður. Við erum byrjaðir að fá inn bókanir fyrir næsta ár enda erum við að upplifa að afhendingartími á öllum aðföngum er mun lengri áður og því er mjög mikilvægt að skipuleggja verkefnin vel og huga snemma að viðhaldsmálum komandi mánaða. Við hjá Slippnum höfum verið að undirbúa okkur fyrir að geta þjónustað viðskiptavini okkar sem best, bæði með aukinni verkþekkingu sem og útvegun aðfanga í gegnum tengslanet okkar innanlands sem og erlendis. Útgerðir uppsjávarskipa eru nú í óða önn að undirbúa stóra loðnuvertíð og erum við nú að aðstoða útgerðirnar við undirbúning skipa fyrir hana. Þetta er gríðarleg lyftistöng fyrir útgerðina sem og alla þá sem starfa við að þjónusta sjávarútveginn“ segir Sveinbjörn í samtali á heimasíðu Slippsins.

Í framleiðsludeild Slippsins er áfram unnið að nýsmíði í Frosta ÞH en einnig er unnið að ráðgjöf og smíði búnaðar fyrir innlenda aðila sem og erlenda sem vonandi verður hægt að segja frá seinna.

Deila: