Gott í Smugunni um helgina

173
Deila:

Makrílskipin voru að fá góð hol í Smugunni um helgina en nú hefur hægt á veiðinni því fiskurinn á svæðinu sem veitt var á hefur verið að ganga inn í norska og færeyska lögsögu. Fá íslensk skip eru nú á miðunum því flest héldu til hafnar með góðan afla. Bjarni Ólafsson AK landaði í gær 1.100 tonnum í Neskaupstað og Börkur NK var á leið þangað með 1.660 tonn. Beitir NK yfirgaf miðin með 1.800 tonn og Margrét EA með 1.200.

Makríllinn, sem skipin eru að fá, er ágætt hráefni til vinnslu. Hann er ýmist heilfrystur, hausaður eða flakaður.

Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við Hjörvar Hjálmarsson, skipstjóra á Berki, í morgun og spurði fyrst hvað skipið hefði fiskað í veiðiferðinni. „Við fiskuðum í þessari veiðiferð 2.130 tonn á 28 tímum. Það er býsna gott. Aflinn fékkst í fimm holum en við settum aflann úr fyrsta holinu um borð í Beiti. Þetta er fínasti makríll, en hann er heldur smærri en verið hefur. Þarna er mest um að ræða 380-400 gramma fisk. Það var þokkalegt veiðiveður á miðunum en vissulega er dálítið leiðinlega langt að fara. Makríllinn á svæðinu, sem við vorum á, var að síga inn í norska og færeyska lögsögu en það var líka að fást ágætur afli nokkru norðar. Auðvitað vonast menn til að það gangi makríll inn í íslenska lögsögu en menn gefa sér ekki mikinn tíma til að leita á meðan hann gefur sig í Smugunni,“ segir Hjörvar.
Ljósmynd Helgi Freyr Ólason

 

Deila: