Grænlendingar í Slysavarnaskólanum

209
Deila:

Á dögunum sóttu 13 grænlenskir sjómenn öryggisfræðslu hingað til lands, bæði bóklega og verklega, í samstarfi við Slysavarnaskóla sjómanna. Þar var farið yfir mikilvæg öryggisatriði er snúa að störfum sjóferenda.

Á grunnnámskeiði Slysavarnaskóla sjómanna er gjarnan haldin sameiginleg æfing Slysavarnaskólans og þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar þar sem nemendur eru hífðir um borð í þyrlu. Á föstudag fengu Grænlendingarnir að taka þátt í einni slíkri.  Slík þjálfun er afar mikilvæg fyrir sjómenn og einnig fyrir björgunarfólk. Farið var á björgunarskipinu Ásgrími S. Björnssyni út á ytri höfn Reykjavíkur þar sem þátttakendur voru hífðir um borð í TF-EIR, þyrlu Landhelgisgæslunnar.

Námskeiðið gekk vel og svo gæti farið að nemendur frá austurströnd Grænlands komi hingað að staðaldri þegar fram líða stundir. Meðfylgjandi mynd af æfingunni á föstudag tók Árni Sæberg, ljósmyndari Morgunblaðsins.

 

Deila: