Greining á ISA-veiru staðfest í laxeldi við Hamraborg og Svarthamarsvík í Berufirði

Deila:

Hið meinvirka afbrigði ISA-veirunnar hefur nú verið staðfest af Matvælastofnun í sýnum sem tekin voru í laxeldisstöð við Hamraborg og Svarthamarsvík í Berufirði í síðustu viku. Aðgerðaráætlun hefur verið virkjuð og mun öllum laxi á eldissvæðunum verða slátrað.

Allt frá því að fyrsta greining ISA-veirunnar átti sér stað úr laxi í sjókví við Gripalda í Reyðarfirði í lok nóvember 2021 hefur ströng vöktun og umfangsmiklar sýnatökur átt sér stað á öðrum eldissvæðum á Austfjörðum. Eins og fram kom í frétt Matvælastofnunar 29. apríl sl., var greining á meinvirku afbrigði ISA-veirunnar staðfest á ný í einni kví við Sigmundarhús. Öllum laxi á þeirri staðsetningu var umsvifalaust fargað. Þann 22. maí sl. var sama afbrigði veirunnar einnig staðfest í laxi við Vattarnes í Reyðarfirði og eru framkvæmdir við slátrun hafnar. Í síðustu viku maí mánaðar vaknaði einnig grunsemd um tilveru veirunnar í laxi í Berufirði, fyrst við Hamraborg og nokkrum dögum síðar einnig við Svarthamarsvík. Lokaniðurstöður voru að berast frá rannsóknarstofu þar sem tilvist meinvirks afbrigðis veirunnar er staðfest. Við Hamraborg eru í eldi um 890.000 laxar í sjö sjókvíum (2-3,2 kg) og Við Svarthamarsvík eru í eldi um 1.099.000 laxar í tólf sjókvíum (0,3-1,4 kg).

Til að gæta fyllstu varúðar hefur Fiskeldi Austfjarða í samvinnu við Matvælastofnun nú þegar virkjað aðgerðaráætlun með tilliti til slátrunar og tæmingu allra kvía. Þar með mun allur Berufjörður tæmast fyrir laxi og fara í eldishvíld. Með þessari aðgerð skal gert hið ýtrasta til að uppræta og hreinsa fjörðinn fyrir ofangreindu veirusmiti.

ISA-veiran tilheyrir fjölskyldunni Orthomyxoviridae og býr yfir flestöllum eiginleikum inflúensaveira sem við þekkjum hjá bæði fuglum og spendýrum. Þekkt eru tvö afbrigði ISA-veirunnar. Annað er góðkynja afbrigði sem aldrei veldur sjúkdómi eða tjóni (HPR0) og hitt er meinvirkt og veldur misalvarlegri sýkingu og afföllum (HPR-deleted).

Veiran er skaðlaus mönnum og berst ekki með fiskafurðum. Þess ber einnig að halda til haga að klínískur sjúkdómur hefur hvergi á heimsvísu verið staðfestur í villtum laxi í sínu náttúrulega umhverfi, jafnvel þó hin meinvirka gerð veirunnar hafi verið einangruð úr slíkum fiski.

Deila: