Grunur um COVID-smit í Kap II VE-7

112
Deila:

Vísbendingar voru um COVID-smit í áhöfn Kap II VE-7 í gær og var þess vænst að niðurstöður skimunar leiddu í ljós síðar um daginn eða kvöldið hvort veikindin skýrist af veirunni eða einhverju öðru.

Skipið var að veiðum þegar grundsemdir vöknuðu um veirusmitið. Það kom til Grundarfjarðar í morgun og tekin voru sýni sem fá flýtimeðferð í rannsókn.

Áhöfnin er í sóttkví um borð og verður ekki landað úr skipinu á meðan beðið er niðurstöðu skimunar.

Alls átta manns í áhöfn Kap II VE-7 hafa einhver veikindaeinkenni en mismikil og líðan þeirra er sögð bærileg. Fimm hafa engum einkennum lýst.

Deila: