Gullver kominn yfir 6.000 tonn

Deila:

Ísfisktogarinn Gullver NS kom til Seyðisfjarðar í fyrr í vikunni úr síðustu veiðiferð ársins. Aflinn var 70 tonn, nánast eingöngu þorskur. Með þessari löndun er afli Gullvers á árinu orðinn rúmlega 6.100 tonn og er það langmesti afli sem skipið hefur borið að landi á einu ári. Næst mesti ársaflinn kom á land í fyrra, 4.300 tonn.

Adolf Guðmundsson rekstrarstjóri segir að árið hafi verið einstaklega gott og hafa verði í huga að skipið hafi verið frá veiðum í fjórar vikur vegna vélarupptektar. Adolf upplýsir að árum saman hafi ársafli Gullvers verið 3.100 – 3.300 tonn en það hafi breyst eftir að Síldarvinnslan eignaðist skipið. „Auðvitað er grundvallaratriði að hafa góðan mannskap til að ná árangri eins og þessum og einnig þurfa veiðiheimildir að vera til staðar,“ segir Adolf í samtali á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Skipstjórar á Gullver eru þeir Rúnar L. Gunnarsson og Þórhallur Jónsson. Eðlilega eru þeir afar ánægðir með ársaflann. Rúnar segir að þegar svona sé veitt sé álag á mannskapinn töluvert og hafa verði í huga að Gullver sé kominn til ára sinna, en hann kom nýr til Seyðisfjarðar árið 1983. „Við höfum að langmestu leyti stundað veiðarnar á okkar hefðbundnu miðum á árinu en fórum þó þrjá eða fjóra túra á Selvogsbanka í haust. Okkar hefðbundnu mið eru Litladýpið, Hvalbakshalli, Fóturinn og Berufjarðarállinn. Þegar hausta tók færðum við okkur dálítið norður eftir og veiddum á Gerpisflaki, Tangaflaki og Vopnafjarðargrunni. Almennt séð þá gengu veiðarnar vel allt árið og hluta úr árinu fengum við góðan liðsstyrk. Jónas Jónsson, fyrrverandi skipstjóri á Gullver, var stýrimaður hjá okkur í október og Steinþór Hálfdanarson, hinn reyndi Síldarvinnsluskipstjóri, var stýrimaður nú í lok ársins. Það er ekki dónalegt að fá svona menn um borð, í þeim er mikill styrkur,“ segir Rúnar.

Þórhallur Jónsson tekur undir með Rúnari og segir að árið hafi einkennst af góðu fiskiríi og verið áfallalaust. „Árið hefur verið jafnt og gott, ef desember er undanskilinn. Nú í lok ársins hafa veður verið slæm og eðlilega hefur það áhrif á veiðiárangur. Flestar veiðiferðir okkar á árinu hafa staðið yfir í 3-4 daga og aflinn hefur verið 95 tonn að meðaltali. Það er ekki slæmt. Við höfum líka aldrei farið jafn margar veiðiferðir á einu ári en þær eru orðnar 64 talsins. Hér áður fór Gullver yfirleitt í um 40 veiðiferðir á ári.  Sóknin hefur verið stíf en árangurinn hefur einnig verið góður. Til þess að ná svona árangri þarf margt að fara saman; til dæmis nægar veiðiheimildir, hagstætt tíðarfar og góð áhöfn,“ segir Þórhallur.

Myndir Þorgeir Baldursson.

Deila: