Hægara að styðja en reisa

Deila:

Sjávarútvegsdagurinn, í samstarfi Deloitte, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi og Samtaka atvinnulífsins verður haldinn miðvikudaginn 25. september í Silfurbergi, Hörpu. Kaffi og morgunhressing frá klukkan 08:00, formleg dagskrá 08:30-10:00.

Yfirskrift Sjávarútvegsdagsins er: Hægara er að styðja en reisa. Kynntar verða niðurstöður gagnagrunns Deloitte um afkomu sjávarútvegsins árið 2018 og fyrirlestrar fluttir um stöðu og horfur útflutningsfyrirtækja. Sérstakur gestur og fyrirlesari verður Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri.

Deila: