Haldið til kolmunnaveiða

82
Deila:

Bjarni Ólafsson AK hélt til kolmunnaveiða í færeyskri lögsögu í gær. Í tilefni af því sló heimasíða Síldarvinnslunnar á þráðinn til Runólfs Runólfssonar skipstjóra.

„Við munum halda til veiða í dag en oft hefur veiðin í færeysku lögsögunni verið að byrja um þetta leyti. Færeysk skip hafa að undanförnu verið að fá þarna smáan kolmunna en sá stærri er væntanlega handan við hornið. Á undanförnum árum hefur veiðin oft verið góð á þessum árstíma en svo var þó ekki í fyrra enda alltaf vitlaust veður. Við gerum ráð fyrir að leggja stund á þessar veiðar fram að jólum eða á meðan kvóti er til staðar. Menn eru bara bjartsýnir á veiðarnar. Það er þó fyrirsjáanlegt að veðrið verður slæmt síðustu daga þessarar viku en síðan mun það ganga niður eins og alltaf,“ segir Runólfur.
Ljósmynd Smári Geirsson.

Deila: