Heimila 7.000 tonna eldi á ófrjóum laxi

102
Deila:

Matvælastofnun hefur unnið tillögu að rekstrarleyfi fyrir Fiskeldi Austfjarða hf. til sjókvíaeldis á ófrjóum laxi í Stöðvarfirði. Tillagan er byggð á matsskýrslu frá 2020 um eldi á 7.000 tonnum af laxi í Stöðvarfirði.

Um er að ræða nýtt rekstrarleyfi sem heimilar allt að 7.000 tonna hámarkslífmassa af ófrjóum laxi á hverjum tíma. Burðarþolsmat Hafrannsóknastofnunar gerir ráð fyrir 7.000 tonna hámarkslífmassa í Stöðvarfirði og áhættumat erfðablöndunar heimilar ekki eldi á frjóum laxi í firðinum.

Framkvæmd fyrirtækisins fór í gegnum mat á umhverfisáhrifum í samræmi við lög um mat á umhverfisáhrifum.

Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun á mast@mast.is. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 24. nóvember 2021.

Deila: