Hlé á kolmunnaveiðum

93
Deila:

Nú eru öll kolmunnaskipin sem landa hjá Síldarvinnslunni komin til hafnar af miðunum vestur af Írlandi. Bjarni Ólafsson AK kom til Neskaupstaðar á föstudag með 1.200 tonn og Börkur NK kom þangað á sunnudag með 2.200 tonn. Loks kom Beitir NK á mánudag með 1.750 tonn. Nú verður gert hlé á veiðunum fram undir páska en þá munu veiðar væntanlega hefjast á ný á gráa svæðinu suður af Færeyjum.

Hafþór Eiríksson, verksmiðjustjóri í Neskaupstað, segir í samtali á heimasíðu Síldarvinnslunnar, að vinnsla á kolmunnanum hafi gengið afar vel. Úr honum fæst gott mjöl  og eitthvað lýsi, en lýsið í fiskinum hefur farið minnkandi enda er hann að horast mjög um þessar mundir.

Á myndinni er Bjarni Ólafsson AK í morgunsólinni sl. föstudag, nýkominn af kolmunnamiðunum. Ljósm. Sigurjón Jónuson

Deila: