Hlutahafafundur í Brimi í næstu viku

Deila:

Hluthafafundur Brims hf. verður haldinn fimmtudaginn 12. desember 2019 í höfuðstöðvum félagsins að Norðurgarði 1, 101 Reykjavík og hefst hann klukkan 17:00. Fundurinn fer fram á íslensku.

Dagskrá

  1. Tillaga um að staðfesta ákvörðun stjórnar um kaup félagsins á öllu hlutafé í sjávarútvegsfyrirtækjunum, Fiskvinnslunni Kambi hf. og Grábrók ehf.
  2. Tillaga frá Útgerðarfélagi Reykjavíkur hf. um að fela stjórn félagsins að leggja fram til samþykktar eða synjunar í síðasta lagi til aðalfundar á árinu 2020, tillögur sem miða að því að auka möguleika erlendra aðila til óbeinnar fjárfestingar í félaginu.
  3. Önnur mál.

 Aðrar upplýsingar

Á hluthafafundum fylgir eitt atkvæði hverri einni krónu í hlutafé. Eigin bréf félagsins njóta ekki atkvæðisréttar.

Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á fundarstað.

Hluthafar sem ekki eiga kost á að sækja fundinn geta:

  1. a) veitt öðrum skriflegt umboð
    b) greitt atkvæði skriflega

Þeim hluthöfum sem hyggjast nýta sér annan hvorn þessara kosta er bent á að kynna sér á heimasíðu félagsins hvernig þeir skuli bera sig að. Þar er að finna leiðbeiningar um skráningu og form skjala og hvernig þeim skuli skilað til félagsins.

Dagskrá, tillögur og öll skjöl sem lögð verða fyrir fundinn eru hluthöfum tiltæk á íslensku, á heimasíðu félagsins og á skrifstofu félagsins á venjulegum skrifstofutíma.

Allar nánari upplýsingar um fundinn má finna á vefsíðu félagsins www.brim.is/brim/fjarfestar/hluthafafundur/

 

Deila: