Hrognin eru að koma

197
Deila:

Beitir NK er á leið til Neskaupstaðar með rúmlega 2000 tonn af hrognaloðnu og er væntanlegur í kvöld. Þar með mun hrognavinnsla hefjast í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar. Beitir fékk 1750 tonn á Faxaflóa í gær í þremur köstum. Börkur NK tók síðan eitt rúmlega 400 tonna kast og var afla hans dælt um borð í Beiti.

Gert er ráð fyrir að Börkur veiði í dag og Bjarni Ólafsson AK á morgun en skipulag veiðanna tekur mið af afkastagetu hrognavinnslunnar. Það skiptir mjög miklu máli hvernig gengur að veiða hrognaloðnuna og vinna hrognin en þau eru verðmætasta afurð vertíðarinnar. Móttaka hrognaloðnunnar hefur verið undirbúin að undanförnu og nú er allt klárt.
Myndin er af Beiti við loðnuveiðar. Ljósmynd Helgi Freyr Ólason

Deila: