Hulda með þrjú tonn í fyrsta róðri

209
Deila:

Ný og glæsileg Hulda kom inn til Grindavíkur um helgina úr sínum fyrsta róðri. Báturinn reyndist vel í alla staði í þessum fyrsta róðri að sögn skipverja, sem sögðu þó að aflinn hefði mátt vera meiri. Aflinn var um 3 tonn samkvæmt færslu Jón Steinars Sæmundssonar á síðunni bátar og bryggjubrölt.

Þegar að Hulda lagðist að bryggju steig sr. Elínborg Gísladóttir sóknarprestur í Grindavík um borð og blessaði hinn nýja bát eins og venja er þegar ný skip koma í höfn í fyrsta skipti. Að athöfn lokinni var gestum boðið uppá veitingar.

Hulda GK 17 er af gerðinni Cleopatra Fisherman 40BB og er 11,99 metra löng. Mælist 29,5 BT að stærð. Báturinn var hannaður hjá Ráðgarði Skiparáðgjöf í samstarfi við Trefjar ehf og eigendur bátsins.

Eigandi og útgerðaraðili Huldu er Blakknes ehf en að því félagi standa feðgarnir Sigurður Aðalsteinsson, Ólafur Már Sigurðsson og Gylfi Þór Sigurðsson.

Heimahöfn Huldu er Sandgerði.

„Báta og bryggjubrölt óskar áhöfn Huldu og útgerð til hamingju með hinn nýja bát og megi hann njóta farsældar,“ segir Jón Steinar.
Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson.

 

Deila: