Humarsalat með mangósósu og ristuðum furuhnetum

Deila:

Humar og jarðaber koma oft upp í hugann, en sjaldan hvort tveggja í einu. Engu að síður er það staðreynd að þetta tvennt fer afskaplega vel saman í lúxus humarsalati. Við fundum þessa uppskrift á netsíðu Evu Laufeyjar Kjaran, trendnet.is Þetta frábær réttur og við mælum með honum hvort sem er fyrir góða gesti eða sem rómantískum kvöldverði fyrir ástfangið fólk á öllum aldri.

Innihald:

  • Gott salat t.d. klettasalat og lambhagasalat
  • 1 askja kirsuberjatómatar
  • 1 askja jarðarber ca. 10 stk
  • ½ melóna (má vera hvaða tegund sem er)
  • 1 mangó
  • ½ rauðlaukur
  • ½ rauð paprika
  • 600 g humar, skelflettur
  • smjör
  • ólífuolía
  • 2 hvítlauksrif
  • ½ chili
  • 1 tsk fersk smátt söxuð steinselja
  • 1 poki furuhnetur

Aðferð:

  1. Skerið öll hráefnin smátt niður og blandið saman í skál eða leggið á fat.
  2. Skolið humarinn vel og þerrið, steikið upp úr olíu og smjöri ásamt pressuðum hvítlauk, smátt skornu chili og ferskri steinselju.
  3. Steikið humarinn í 3 – 4 mínútur. Setjið humarinn þá strax yfir salatið.
  4. Sáldrið ristuðum furuhnetum yfir í lokin ásamt nokkrum skeiðum af sósunni.

Hvítlaukssósa með mangó

  • 1 dós sýrður rjómi
  • ½ mangó
  • 2 msk majónes
  • 1 hvítlauksrif
  • ¼ rautt chili
  • salt og pipar
  • 1 tsk hunang

Aðferð:

  1. Setjið öll hráefni í matvinnsluvél eða maukið með töfrasprota. Gott er að kæla sósuna í hálftíma áður en þið berið hana fram.

 

Deila: